Óskað eftir aðstandendum til þáttöku í aðstandendafélagi Holtsbúðar
Bæklingur fyrir aðstandendur
Fréttabréf aðstandendafélagssins
Sjálfboðavinna

Starfsfólk

Á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð starfa u.þ.b. 70 manns í fullu starfi eða hlutastarfi.  Þar má nefna hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, félagsliða, almennt starfsfólk í aðhlynningu, eldhúsi, ræstingu og þvottahúsi, húsvörð, matreiðslumann og rekstrarfulltrúa.

Framkvæmdastjóri Holtsbúðar er Þóra Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Deildarstjóri hjúkrunar er Vilborg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur.

Rekstarfulltrúi er Helga Elísdóttir.

Matreiðslumeistari er Einar Sigurjónsson.

Minningarkort

Minningarsjóður Holtsbúðar er með minningarkort sem hægt er að senda aðstandendum og öðrum sem eiga um sárt að binda þegar ástvinur fellur frá.  Hægt er að panta minningarkort í síma 535-2200, og er þá minningarkortið útbúið og sent til þess sem það á að fá.  Lágmarksframlag er kr. 1000, sem er ýmist hægt að greiða með greiðsluseðli sem sendur er heim til viðkomandi, eða með því að leggja beint inn á reikning Holtsbúðar.  Nánari upplýsingar gefnar í síma.

Störf í boði

Holtsbúð er ávallt að leita að hæfileikaríku fólki á sviði umönnunar og hjúkrunar. Ef þú hefur áhuga að taka þátt í hinu metnaðarfulla starfi Holtsbúðar, getur þú sent umsókn á thora@holtsbud.is eða vilborg@holtsbud.is

Holtsbúð býður upp á sveigjanlegt vinnufyrirkomulag.