Óskað eftir aðstandendum til þáttöku í aðstandendafélagi Holtsbúðar
Bæklingur fyrir aðstandendur
Fréttabréf aðstandendafélagssins
Sjálfboðavinna

Meginmarkmið um rekstur dvalar-og hjúkrunarheimilisins Holtsbúð.

Dvalar og hjúkrunarheimilið Holtsbúð er sjálfseignarstofnun sem stofnsett var að tilhlutan bæjarstjórnar Garðabæjar og hreppsnefndar Bessastaðahrepps. Heimilið er ætlað öldruðu fólki, sem þarf á sérstakri umönnun að halda. Áhersla er lögð á að veita heimilisfólki sem besta þjónustu, er byggir á góðu og faglegu starfi í náinni samvinnu við heimilisfólk og aðstandendur þeirra.

Starfsfólk heimilisins skal hafa það að leiðarljósi að hver maður hefur sína sérstöðu. Áhersla er lögð á nærgætni og alúð í starfi, og skal taka tillit til þess að hver maður hefur sína sérstöðu eftir því sem við verður komið. Ellin leikur fólk misjafnlega. Á sumum andlegum og líkamlegum þáttum, sem áður voru taldir óumflýjanlegir með hækkandi aldri, má nú ráða bót á að fullu eða hluta. Því er mikilvægt að náið sé fylgst með heilsufari og líðan heimilisfólks og að öll úrræði séu stöðugt endurmetin með skömmu millibili. Sérstaklega skal haft í huga gott samráð við heimilisfólk og aðstandendur þess um líknandi meðferð.

Áhersla er lögð á það að heimilið sé rekið með heimilisbrag og að heimilisfólkið geti hagað lífi sínu á þann veg, sem það helst kýs á sínu eigin heimili. Því er starfsfólki heimilisins ætlað að haga störfum sínum í samræmi við þarfir heimilisfólks svo sem frekast er kostur.

Í rekstri heimilisins skal gildi fjölskyldunnar í lífi hvers manns sett í öndvegi. Gætt skal þess að tekið sé tillit til fjölskyldunnar í umönnun heimilisfólks. Leitast skal við að skapa fjölskyldum heimilisfólks möguleika á því að taka þátt í umönnun eftir því sem aðilar kunna að óska. Hafa skal það sem meginreglu, að aðstandendur heimilisfólksins skipi því fjárhaldsmann eða ráðsmann, þegar það er ekki fært um að sjá um eigin fjármál, enda er starfsfólki heimilisins ekki ætlað að koma að fjármálum heimilisfólks.

Framkvæmdastjóri hefur umsjón með daglegum rekstri heimilisins í samræmi við lög og reglugerðir og sett markmið stjórnar heimilisins. Honum er skylt að gæta skilvirkni í rekstri heimilisins og leitast við að greiða úr þeim úrlausnarefnum sem heimilisfólk, aðstandendur þess og starfsmenn heimilisins bera upp og falla undir almennar samþykktir stjórnar heimilisins. Skal það sérstaklega haft í huga, að jafnræðis sé gætt við úrlausn mála.