Óskað eftir aðstandendum til þáttöku í aðstandendafélagi Holtsbúðar
Bæklingur fyrir aðstandendur
Fréttabréf aðstandendafélagssins
Sjálfboðavinna

Íbúar

Holtsbúð er hjúkrunarheimili fyrir aldraða, þar eru heimilismenn um 40.  Íbúar Garðabæjar og Bessastaðahrepps eiga forgang með pláss.  Í Holtsbúð  fá heimilismenn hjúkrun og aðhlynningu allan sólarhringinn.  Heimilismenn Holtsbúðar eiga við afar misjöfn heilsufarsvandamál að stríða en sameiginlegt öllum heimilismönnum er að heilsufar þeirra leyfir ekki lengur búsetu á fyrra heimili.

Samhliða hjúkrunarheimilinu er starfrækt dagvistun í Holtsbúð.  Leyfi er fyrir að taka á móti 10 einstaklingum í dagvistun.  Dagvistunin er opin alla virka daga og er staðsett í Holtsbúð 85, næsta húsi við hjúkrunarheimilið, sem einnig er í eigu Holtsbúðar. Nánari upplýsingar um dagvistun eru hér annars staðar á síðunni.

Mikið er lagt upp úr samstarfi við aðstandendur heimilismanna Holtsbúðar.  Heimsóknartími er frjáls og aðstandendur eru alltaf velkomnir. 

Hjúkrun

Í Holtsbúð starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við aðhlynningu heimilismanna allan sólarhringinn. Lögð er áhersla á nærgætni og alúðlega framkomu í starfi. Við viljum koma til móts við og mæta þörfum hvers og eins eftir því sem við verður komið. Flestir heimilismenn búa við langvinna sjúkdóma sem krefjast samfelldrar hjúkrunar og umönnunar allan sólarhringinn. Hjúkrunin miðast því við að geta annast einstaklinga með þá fjölþættu sjúkdóma sem einkennir þá sem á hjúkrunarheimilinu búa.

Í langtíma hjúkrun aldraðra er leitast við að fara eftir hugmyndafræði um líknandi umönnun og er haft í huga að hafa gott samráð við heimilismenn, þar sem sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins er virtur. Einnig er haft gott samráð við aðstandendur um líknandi meðferð og velferð einstaklinganna sem þar dvelja. Í líknandi umönnun felst heildræn umönnun skjólstæðingsins þar sem markmiðið er að stuðla að lífsgæðum og viðhalda færni út frá líkamlegum, sálrænum og félagslegum þáttum einstaklingsins. Öll umönnun miðast við að heimilismenn haldi reisn sinni og virðingu þrátt fyrir veikindi og fötlun.

Markmið hjúkrunar og umönnunar:

  • Tryggja lífsgæði og velferð heimilismanna

  • Hvetja heimilismenn til sjálfshjálpar

  • Stuðla að heilbrigði og vellíðan heimilismanna

  • Viðhalda og þjálfa líkamlega og andlega færni eftir því sem unnt er miðað við getu hvers og eins

  • Virða sjálfsákvörðunarrétt heimilismanna og aðstandenda þeirra

  • Veita heimilismönnum og aðstandendum bestu þjónustu sem völ er á á hverjum tíma

  • Sýna nærgætni og alúð í starfi

  • Fylgjast náið með heilsufari og líðan heimilismanna

  • Endurmeta úrræði reglulega

  • Gildi fjölskyldunnar í lífi hvers manns sé sett í öndvegi

  • Auðvelda fjölskyldum heimilisfólks að taka þátt í daglegu lífi og umönnun eftir því sem við á

  • Starfað er eftir siðareglum fagstétta.


Læknisþjónusta

Holtsbúð hefur gert samning við Landakot um læknisþjónustu. Á þeirra vegum er Björn Einarsson öldrunarsérfræðingur starfandi í Holtsbúð. Læknir hefur  fastan viðverutíma tvisvar í viku. Einnig er hægt að ná símasambandi við hann alla virka daga til kl. 16, eftir það tekur vakthafandi læknir við. Aðgengi að annarri sérhæfðri læknisþjónustu er veitt innan heimilisins eða fyrir utan eftir því sem við á.

Stefnt er að því að halda fjölskyldufund með aðstandendum hvers heimilismanns að minnsta kosti einu sinni á ári.  Aðstandendur geta hvenær sem er óskað eftir fjölskyldufundi þess utan.

Markmið læknisþjónustu:
  • Stuðla að sem bestri líkamlegri og andlegri heilsu heimilismanna sem og að auka færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklingsins eftir leiðum læknisfræðinnar með þverfaglegri samvinnu. Haft er að leiðarljósi að meðhöndla veikindin á heimilinu ásamt því að líkna og hjúkra heimilismönnum innan veggja heimilisins. Áhersla er á að hafa gott samráð við heimilismenn og aðstandendur þeirra um líknandi meðferð. Ráðleggur læknir og hjúkrunarfræðingur meðferð í samráði við heimilismann eða aðstandendur hans.

Sjúkraþjálfun

Verið er að vinna í að ráða sjúkraþjálfara til heimilisins.  Eins og staðan er í dag er Holtsbúð með ráðgefandi sjúkraþjálfara sem aðstoðar við að setja upp áætlun fyrir þjálfun hvers og eins.  Það er síðan í höndum ákveðins starfsmanns að framfylgja þeim áætlunum í samráði við hjúkrunarfræðinga Holtsbúðar.  Upplýsingar verða settar inn á heimasíðu Holtsbúðar þegar tekist hefur að ráða sjúkraþjálfara með fasta viðveru.  Góð aðstaða er í kjallara hússins fyrir sjúkraþjálfun. Þar má finna ýmis tæki sem Holtsbúð hefur fengið að gjöf frá hinum ýmsu samtökum. Einnig er pottur með heitum bökstrum við hendina og ýmislegt fleira.

Markmið sjúkraþjálfunar:
  • Þjálfa, örva og viðhalda hreyfigetu fólks, vinna að forvörnum og veita fræðslu til fólks. Endurhæfa eftir sjúkdóma og brot.

Samskipti við aðstandendur

Í Holtsbúð er mikið lagt upp úr góðu samstarfi við aðstandendur.  Aðstandendur eru hvattir til að ræða við starfsfólk um það sem þeir vilja koma á framfæri varðandi líðan og umönnun ástvina sinna. 

Stefnt er að því að halda fjölskyldufundi með aðstandendum a.m.k. einu sinni á ári.  Ýmist er læknir og hjúkrunarfræðingur á fundinum, eða eingöngu hjúkrunarfræðingur, allt eftir óskum aðstandenda.  Aðstandendur eru hvattir til að láta vita ef óskað er eftir fjölskyldufundi.

Útbúinn hefur verið gátlisti til að styðjast við á fjölskyldufundum, og fylgja þau atriði sem eru á honum hér á eftir.  Atriði þessi eru hugsuð til að auðvelda markvissa umræðu á fjölskyldufundum og hjálpa aðstandendum til að setja niður fyrir sér hvaða atriði þeir vilja ræða.  Einnig nýtist gátlistinn vel því starfsfólki sem situr fjölskyldufundina.  Gátlistinn er á þessa leið:

  • Líðan heimilismanns að mati aðstandenda
  • Líðan heimilismanns að mati starfsfólks
  • Aðbúnaður heimilismanns og aðstandenda
  • Næringarástand, séróskir og sérþarfir heimilismanns varðandi mataræði
  • Lyf
  • Hreyfing og dægradvöl heimilismanns, ábyrgð Holtsbúðar og aðstandenda
  • Hreinlæti og snyrting
  • Hárgreiðsla og fótaaðgerðir - óskir og fyrirkomulag
  • Sjúkraþjálfun
  • Fatnaður heimilismanna - þvottur og merkingar
  • Óskir og meðferð við lífslok
  • Annað

Samskiptabók er í náttborðsskúffum allra heimilismanna.  Markmiðið með henni er að starfsfólk geti skrifað niður í bókina ef viðkomandi heimilismann vantar t.d. snyrtivörur eða föt, og að aðstandendur geti skrifað niður í bókina atriði sem það vill benda á, ýmist það sem betur má fara eða það sem vel er gert. 

Eldhús

Í Holtsbúð er allur matur matreiddur á staðnum í eldhúsi hússins fyrir heimilis- og starfsfólk. Þar er leitast við að framreiða hollan, fjölbreyttan og staðgóðan íslenskan mat í samræmi við það sem fólk þekkir. Einnig eru markmið Manneldisráðs höfð að leiðarljósi. Matseðillinn er því í senn fjölbreyttur og spennandi og er áætluð vika í senn þannig að fólk getur fylgst með hvað sé í matinn fram í tímann. Jafnframt er sendur út heitur matur í hádeginu fyrir íbúa Garðabæjar og Álftaness. Beiðnir um heimsendingarþjónustu þurfa að berast félagsþjónustu Garðabæjar.

Matreiðslumeistari Holtsbúðar og yfirmaður eldhúss er Einar Sigurjónsson.

Aðstandendur heimilismanna geta borðað í matsal Holtsbúðar í hádegi, á kvöldin og í kaffinu gegn vægri greiðslu.

 

HÁDEGISMATSEÐILL vikuna 28.janúar - 3.febrúar 2008

Mánudagur 28.janúar:  Soðin ýsa, borin fram með rækjusósu og soðnu grænmeti.  Minestrone grænmetissúpa.

Þriðjudagur 29.janúar:  Soðnar kjötbollur ásamt rófum, hvítkáli, kartöflum og bræddu smjöri.

Miðvikudagur 30.janúar:  Djúpsteikt ýsa í orly-deigi, borin fram með hrísgrjónum, grænmeti og súrsætri sósu.

Fimmtudagur 31.janúar:  Uxahalasúpa ásamt heitri eggjaböku með aspas.

Föstudagur 1.febrúar:  Ofnsteiktar kjúklingabringur og læri ásamt frönskum kartöflum og fersku grænmetissalati.

Laugardagur 2.febrúar:  Soðin ýsa ásamt meðlæti að hætti eldhúss Holtsbúðar.  Skyr með rjómablandi.

Sunnudagur 3.febrúar:  Steiktar kótilettur ásamt meðlæti.  Eftirréttur.

Afþreying

Í Holtsbúð er einstaklingnum sinnt út frá heildrænu sjónarmiði.  Í því felst meðal annars að starfsfólk aðstoðar heimilismenn við daglega afþreyingu, sem getur verið með ýmsu móti.  Meðal annars er farið út í göngutúra ef veður leyfir, lesið er upphátt reglulega, stundum er sungið saman og boðið upp á hressingu með. Annað tómstundagaman er skipulagt með fyrirvara, s.s. bæjarferðir, listasýningar, keila, boccia og handverk. Bingó er alltaf einu sinni í viku í húsnæði dagvistunar.   Stundum fáum við góðar heimsóknir frá listamönnum sem spila og syngja.

Dagvistun Holtsbúðar er opin alla virka daga.  Þangað eru allir heimilismenn velkomnir sem hafa áhuga og getu til að taka þátt í því tómstundastarfi sem þar er boðið upp á, s.s. upplestri úr dagblöðum, handavinnu, boccia, bingó og fleira. 

Prestur

Prestar Garðabæjar sjá um helgistundir og guðsþjónustur.  Séra Friðrik Hjartar og Séra Jóna Hrönn Bolladóttir eru með helgistundir síðasta fimmtudag í hverjum mánuði.  Helgistundirnar eru haldnar í sal Holtsbúðar kl. 14, og eru aðstandendur hjartanlega velkomnir að taka þátt með ástvinum sínum. 

Djáknar Garðabæjar, þær Nanna Guðrún Zöega og Gréta Konráðsdóttir koma reglulega í heimsóknir og sinna trúarlegum og andlegum þörfum þeirra heimilismanna sem þess óska.

Þvottahús

Í Holtsbúð er starfrækt þvottahús þar sem allt lín heimilisins er þvegið, ásamt fatnaði heimilismanna.  Þegar nýr heimilismaður kemur í Holtsbúð er honum úthlutað fatanúmeri sem aðstandendur sjá um að merkja öll föt viðkomandi heimilismanns með.  Þegar búið er að merkja fatnað heimilismanna sér þvottahús Holtsbúðar um þvott á honum.  Þvottahúsið getur ekki séð um þvott sem ekki má þvo í vél, og eru aðstandendur beðnir um að senda slíkan fatnað í hreinsun.

Hárgreiðsla

Íbúar Holtsbúðar hafa aðgang að hárgreiðslukonu og kemur hún alla miðvikudaga og fimmtudaga.  Aðstandendur þurfa að láta starfsfólk Holtsbúðar vita ef óskað er eftir klippingu, hárlagningu, permanenti eða þess háttar.  Aðstaða fyrir hárgreiðslu er fyrir hendi í kjallara Holtsbúðar en hárgreiðslukona getur einnig sinnt heimilismönnum á aðalhæð ef þess er óskað.  Æskilegast er að aðstandendur setji sig í samband við hárgreiðslukonu Holtsbúðar varðandi greiðslu fyrir þjónustuna.

Klipping kostar kr. 2500.

Guðrún Sigríður Jónsdóttir er hárgreiðslukona Holtsbúðar.

Fótaaðgerðir og snyrting

Fótaaðgerðafræðingur kemur alla fimmtudaga.  Æskilegast er að aðstandendur setji sig í samband við fótaaðgerðafræðinginn varðandi greiðslufyrirkomulag.  Aðstandendum er bent á að hafa samband við starfsfólk Holtsbúðar ef óskað er eftir þjónustu fótaaðgerðafræðings.

Almenn fótaaðgerð kostar kr. 4000.

Fótaaðgerðarfræðingur Holtsbúðar er Hrafnhildur Hjálmarsdóttir.

 

Snyrtifræðingur kemur í Holtsbúð í hverjum mánuði og sinnir handsnyrtingu, vaxmeðferð og fleira.  Æskilegast er að aðstandendur setji sig í samband við snyrtifræðinginn varðandi greiðslufyrirkomulag.  Aðstandendum er bent á að hafa samband við starfsfólk Holtsbúðar ef óskað er eftir þjónustu snyrtifræðings.

Snyrtifræðingur Holtsbúðar er Guðrún Þórbjarnardóttir.

Verðskrá fyrir snyrtingu er væntanleg fljótlega.

Aðstandendafélagið

Í aðstandendafélagi Holtsbúðar eiga sæti nokkrir aðstandendur heimilismanna.  Félagið hittist einu sinni í mánuði yfir vetrartímann ásamt framkvæmdastjóra og deildarstjóra Holtsbúðar.  Á fundunum er farið yfir atriði sem snerta aðstandendur, s.s. boðskipti, samskiptaferla og fleira.  Ennfremur er á fundunum skipulagt það starf sem aðstandendafélagið stendur fyrir, og má þar helst nefna aðstandendakaffi í desember og maí.  Allir aðstandendur heimilismanna Holtsbúðar eru velkomnir að taka þátt í félaginu.   Nánari upplýsingar fást hjá Þóru Karlsdóttur framkvæmdastjóra eða Vilborgu Helgadóttur deildarstjóra.

Dagvistun

Haustið 2003 byrjaði dagvistun hér í Holtsbúð og er leyfi fyrir 10 manns á dag.  Dagvistunin var upphaflega staðsett í kjallara hjúkrunarheimilisins en vorið 2007 var tekin í notkun ný og mun betri aðstaða í Holtsbúð 85, sem er húsið við hliðina á hjúkrunarheimilinu og er það í eigu hjúkrunarheimilisins.  Einstaklingar geta óskað eftir dagvistun frá tveimur dögum í viku upp í fimm daga í viku, þ.e. alla virka daga vikunnar.  Starfseminni er þannig háttað að fólk er sótt heim og keyrt í Holtsbúð.  Komið er í Holtsbúð 85 um níu leytið og hefst dagurinn með morgunverði.  Hádegisverður hefst kl. tólf og síðdegiskaffi kl. þrjú.  Milli hálffjögur og fjögur eru einstaklingar sóttir og keyrðir heim.  Það kostar 600 kr. á dag að sækja dagvistun.   Í dagvistun er ýmislegt í boði s.s. hvíldaraðstaða, sjúkraþjálfun, handavinnuaðstaða o.fl.  Einnig er hægt að fá aðstoð við bað sé þess óskað. 

DÆMI UM ÞAÐ SEM ER Í BOÐI Í DAGVISTUN:

Morgunverður kl. 09:00

Umönnunarþjónusta er frá kl. 10:00-12.00, þar sem m.a. er eftirfarandi í boði:  Böðun, hárgreiðsla, fótsnyrting (á fimmtudögum), sjúkraþjálfun, hvíldaraðstaða og stólaleikfimi.

Félagsstarf er frá kl. 10:00-12:00, þar er m.a:  Lesið úr dagblöðum, föndur (hægt er að kaupa efni á staðnum), og spilað á spil.

Hádegisverður og hvíld kl. 12:00

Ýmis afþreying og leikir kl. 13:00-15:00, m.a: Handverk, keila, boccia, bingó (á föstudögum), upplestur úr bókum, gönguferðir, spilamennska, og vettvangsferðir, t.d. kaffihús.

Kaffi og meðlæti kl.15:00

Lok dagsins og fólk keyrt heim milli 15:30-16:00

 

HVERNIG ER SÓTT UM DVÖL Í DAGVISTUN?

Hafa þarf samband við félagsþjónustu viðkomandi sveitarfélags sem sendir svo beiðni til Þóru Karlsdóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra Holtsbúðar.

Starfsfólk dagvistunar:

Ólöf Karlsdóttir, sjúkraliði.

Gunnþóra Skaftadóttir, sjúkraliði.

Sólrún Hafsteinsdóttir, sjúkraliði.

Haukur Finnbogason, starfsmaður.

Þagnarskylda

Samkvæmt lögum hvílir þagnarskylda á öllu starfsfólki sem starfar við hjúkrunarheimilið.  Þagnarskyldan helst þótt látið sé af störfum.