Hafið er samstarf á milli Fjölbrautarskólans í Garðabæ og hjúkrunarheimila í Garðabæ og Kópavogi. Hluti af námsmati í tilteknum áfanga (Lífsleikni) er að nemendur komi og dvelji í stutta stund sem sjálfboðaliðar á hjúkrunarheimili.
Veturinn 2006 - 2007 komu margir nemendur Fjölbrautaskólans sem sjálfboðaliðar í Holtsbúð, og er næsta víst að sú reynsla hafi verið unga fólkinu til góða, ásamt því að vera ánægjuleg fyrir heimilismenn. Nemendur fengu tækifæri til að vera samvistum við heimilismenn og kynnast þeim lítillega, sem er bæði gott og gefandi fyrir nemendur og heimilismenn Holtsbúðar. Meðal annars fólst sjálfboðaliðastarfið í því að skreppa í göngutúr með heimilismönnum, lesa upphátt fyrir heimilismenn, aðstoða heimilismenn við máltíðir og fleira. Það er von og trú okkar í Holtsbúð að samstarfið við FG veturinn 2007 - 2008 verði áfram svona ánægjulegt, og gefi ungu kynslóðinni tækifæri til að sjá fleiri hliðar á lífinu og tilverunni.











