Óskað eftir aðstandendum til þáttöku í aðstandendafélagi Holtsbúðar
Bæklingur fyrir aðstandendur
Fréttabréf aðstandendafélagssins
Sjálfboðavinna
15. October 2007 kl 20:54

Fyrir hönd Holtsbúðar hef ég þá ánægju að kynna bækling sem undirrituð hefur, ásamt Þóru Karlsdóttur framkvæmdastjóra Holtsbúðar og sr. Jónu Hrönn Bolladóttur, sóknarpresti Vídalínskirkju, unnið að undanfarnar vikur.  Bæklingur þessi er hugsaður fyrir aðstandendur eldra fólks sem er að flytja á hjúkrunarheimili eða er þegar flutt.  Bæklingurinn tekur á ýmsum málefnum sem geta verið aðstandendum ofarlega í huga þegar kemur að samskiptum við ástvini sína á hjúkrunarheimili.  Þar má nefna ráðleggingar um það hvernig er hægt að eiga góðar samverustundir með sínum nánustu á hjúkrunarheimili, hvernig er hægt að bregðast við þegar hegðun ástvinar á hjúkrunarheimili breytist vegna heilabilunar eða annarra veikinda, og margt fleira. 

Vilborg Helgadóttir, deildarstjóri.

Til baka