Óskað eftir aðstandendum til þáttöku í aðstandendafélagi Holtsbúðar
Bæklingur fyrir aðstandendur
Fréttabréf aðstandendafélagssins
Sjálfboðavinna
28. January 2008 kl 09:37

Eins og fram kemur annars staðar á þessarri heimasíðu er starfrækt aðstandendafélag í Holtsbúð, þar sem stjórnin hittist mánaðarlega yfir vetrartímann.  Aðstandendafélagið er hugsað sem stuðningur og vettvangur fyrir aðstandendur til að vera málsvari sinna aðstandenda á hjúkrunarheimilinu.

Vegna breytinga á stjórn aðstandendafélagsins er hér með óskað eftir a.m.k. tveimur aðstandendum til viðbótar í stjórn félagsins.  Áhugasamir hafi samband við Vilborgu deildarstjóra eða Þóru framkvæmdastjóra.

15. October 2007 kl 20:54

Fyrir hönd Holtsbúðar hef ég þá ánægju að kynna bækling sem undirrituð hefur, ásamt Þóru Karlsdóttur framkvæmdastjóra Holtsbúðar og sr. Jónu Hrönn Bolladóttur, sóknarpresti Vídalínskirkju, unnið að undanfarnar vikur.  Bæklingur þessi er hugsaður fyrir aðstandendur eldra fólks sem er að flytja á hjúkrunarheimili eða er þegar flutt.  Bæklingurinn tekur á ýmsum málefnum sem geta verið aðstandendum ofarlega í huga þegar kemur að samskiptum við ástvini sína á hjúkrunarheimili.  Þar má nefna ráðleggingar um það hvernig er hægt að eiga góðar samverustundir með sínum nánustu á hjúkrunarheimili, hvernig er hægt að bregðast við þegar hegðun ástvinar á hjúkrunarheimili breytist vegna heilabilunar eða annarra veikinda, og margt fleira. 

Vilborg Helgadóttir, deildarstjóri.

4. March 2005 kl 15:41
Fréttabréf aðstandendafélagssins er hægt að nálgast á .pdf formi hér
1. March 2005 kl 22:48
Það stendur til að hefja samstarf við Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Hluti af námsmati í tilteknum áfanga er að nemendur komi og dvelji í stutta stund sem sjálfboðaliðar í Holtsbúð. ... Meira