Saga Holtsbúðar
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Holtsbúð er sjálfseignarstofnun sem stofnsett var að tilhlutan bæjarstjórnar Garðabæjar og hreppsnefndar Bessastaðahrepps í nóvember 1998. Húsið, sem var byggt árið 1976, var hvíldarheimili St. Jósefssystra og er í eigu reglunnar en Holtsbúð leigutaki. Hjúkrunarheimilið tók til starfa í janúar 2000 og er rekið með daggjöldum frá Tryggingastofnun. Heimilið er fyrir 40 heimilismenn og þar af fimm til sex í Holtsbúð 85. 10 einstaklingar til viðbótar sækja að jafnaði dagvistun.
Holtsbúð 87 - aðbúnaður
Herbergin eru 16 talsins á efri hæð og eru öll tvíbýli. Í kjallara eru tvö einbýli. Í hverju herbergi er baðherbergi þar sem er salerni, vaskur, sturtuaðstaða og skápur. Í herberginu sjálfu eru rafdrifin rúm ásamt náttborðum í stíl, stór fataskápur og sími við hvert rúm. Bjöllukerfi, sem er tengt vaktinni, er að finna í hverju herbergi, bæði við rúmin og á snyrtingunni. Heimilismenn geta komið með sín eigin húsgögn, t.d. hvíldarstól, myndir, sjónvarp og annan húsbúnað. Hverju rúmi fylgir sæng og sængurfatnaður og sér heimilið einnig fyrir þvottastykkjum, handklæðum og þess háttar. Matsalur er sameiginlegur ásamt sjónvarpsaðstöðu og dagstofum. Góður garður er fyrir heimilismenn.
Holtsbúð 85
Holtsbúð 85 er einbýlishús sem sjálfseignarstofnunin festi kaup á. Þeir sem þar búa þurfa að hafa ákveðna sjálfsbjargargetu. Þeim gefst kostur að borða í Holtsbúð, sækja þangað sjúkraþjálfun, ýmiskonar afþreyingu og aðra þjónustu sem í boði er. Dagvistun hefur góða aðstöðu í Holtsbúð 85.
Í Holtsbúð 85 eru 4 einbýli og 1 hjónaherbergi. Eldhús, stofa, borðstofa og 2 baðherbergi eru sameiginleg. Starfsmenn dagvistunar eru heimilisfólki innan handar á daginn, aðstoða við máltíðir og aðhlynningu . Í hverju herbergi er sími sem jafnframt er bjalla tengd Holtsbúð ef þörf er á hjálp. Hverju herbergi fylgir skápur, rafdrifið rúm, sængurfatnaður og handklæði.











